06apríl
Ég eins og svo margir aðrir hef lítið bloggað undanfarið þar sem set flest á facebook! Það er svoltið merkilegt hvað það er tímafrekt að vera á facebook og hvað það stelur frá blogginu! Það er þó ekki allt sem ratar inn á facebook en það kannski er nú flest samt..
Við fórum í 20 vikna sónar og fengum staðfestingu á að allt væri eðlilegt. Fengum líka að vita að lítill prins væri á leiðinni þannig að litlu kjólarnir og bleiku gallarnir fara bara niður í kassa sumt og annað í rauða krossinn. Emma verður áfram prinsessan á heimilinu og við húsþrælar reikna ég með...
Það er ótrúlega skemmtilegt að vita kynið finnst mér, hef prufað bæði og held mundi láta segja mér aftur. Ekki það að það er svo misjafnt hvernig liggur í bólið hjá manni þannig að það er aldrei að vita! Tel núna bara niður vikurnar þangað til er búin að skila lokaverkefninu, því nú er að duga eða drepast!! Ætla að reyna skila í júni til að geta slakað aðeins á í júlí áður en kríli kemur.
Hann verður blessaður bara kallaður kríli þar sem við Biggi höfum fullt af stelpu nöfnum en ekkert stráka nafn á reiðum höndum. Erum bara alls ekki sammála í þeirri deildinni!
Biggi er líka á fullu núna við að reyna klára ritgerð til að geta einbeitt sér að lokaverkefninu og þessu eina prófi sem hann á svo eftir. Hann ætlar líka að vera búin í lok júlí svo við getum bara verið heima litla fjölskyldan í rólegheitum þegar kríli mætir! En það er alltaf gott að plana en bestu plön geta farið hingað og þangað.
Við munum flytja okkur um set en bara ofar í götuna núna í sumar eða haust, Biggi er ekki búin að fá vinnu hvorki hér né þar og við sitjum bara sem fastast í því sem okkur finnst tryggast eins og er. Vonandi verður það nú samt komið á hreint.
Vinnan hjá mér er heldur slök þessa dagana. Það gerist lítið sem ekkert og ég sit og læri eða hangi á netinu og fæ borgað fyrir það. Ósköp er það leiðinleg vinna og tíminn lengi að líða. Karlarnir eru að hugsa um að fara að hætta hafa opið á laugardögum en það væri slæmt skarð í fjárhag okkar Birgis! Ekki get ég aukið við mig vinnu á móti og ekki vill neinn annar ráða kasólétta kellingu!
Emma er loksins farin að tala eitthvað að ráði, farin að setja saman setningar, bæði á Íslensku og Ensku, en vill´þó helst ekkert við fólk tala þegar það talar ensku við hana. Snýr bara upp á sig og neitar að svara. Það kemur svo sem ekki að sök þar sem það eru ekki margir sem skilja hennar sér Emmulega framburð hvort eð er....
Hún fékk þríhjól um daginn og var svakalega spennt yfir því, er búin að fara einn hjólatúr sem gekk bara vel og við munum svo reyna að taka það með á leikvöllinn í vikunni til að leyfa henni að spreyta sig! Hún fékk líka að taka með sér dúkkuvagninn út í gær sem henni fannst alveg æðislegt, og labbaði eins og hershöfðingi við hlið ´mér með sitt barn í vagninum.
Veðrið er búið að vera frábært undanfarið og ég er bara orðin svakalega útitekin! Tókum tvær bumbumyndir um daginn sem eru í nýju myndaseríunni en viku seinna var ég komin með miklu stærri bumbu svo að er ekkert að marka!
Og já það eru komnar nokkrar nýjar myndir
knús og kveðjur
Svana
06mars
Jæja þá er gamla settið komið í kotið til okkar. Emma er að missa sig af ánægju yfir heimsókninni. Ekki það að ég hafi ekki gaman af henni líka en Emma blómstrar algjörlega í athyglinni. Hún hefur þau bæði í rassvasanum og við Biggi óttumst að þegar þau verði farin þurfum við að leika við hana út í eitt allan daginn!!! Afi vaknar glaður klukkan 7 á morgnana til að fara leika við hana og það er afrek útaf fyrir sig.....
Við Mamma áttum bissý dag í gær en við mæðgur fórum með Emmu í sund, á inni leikvöll og í tvær búðarferðir til að kaupa inn fyrir afmælið hennar Emmu!´Fórum svo á riverdance sýningu um kvöldið. Það var alveg frábært, svaka gaman og ég hélt að mamma myndi dansa heim var svo æst yfir þessu! Við vorum báðar örmagna þegar komum heim og ég var nú ekkert sérstaklega hress þegar skreiddist á fætur í morgun.
Í kvöld ætlum við Biggi að nýta okkur tækifærið að hafa pössun og kíkja út að borða með vinum okkar og á pub quiz á eftir sem er svona spurningaleikur á pöbbnum. Agnes vinkona okkar á afmæli og við ætlum að halda upp á það með henni! Ég er svo að vinna á morgun og svo er afmæli á sunnudaginn! Biggi og mamma notlega redda þrifunum og ég baka bara á sunnudagsmorguninn. Þ.e. til viðbótar við það sem Biggi verður búinn að gera!!
Læt þetta duga í bili, reyni að henda inn myndum strax eftir afmæli!!
knús og kossar
Svana
11janúar
Sunnudagar eru að verða uppáhaldsdagarnir mínir. Þá er ég ekki að vinna og Biggi ekki í skólanum. Við reynum að gera alltaf eitthvað með Emmu, þó ekki sé nema að fara á leikvöllinn! Er einhvern veginn svo notalegir fjölskyldudagar!
Í dag fórum við og hittum Rósu, Bigga og Bjarnheiði í fyrsta skipti síðan fyrir jól. Enda voru litlu vinkonurnar glaðar að sjá hvor aðra. Við fylgdum Bigga svo á lestarstöðina þar sem hann var að fara til London. Mikið vorkenndi ég Bjarnheiði sem þurfti að kveðja pabba sinn. Mundi bara ekk bjóða í það ef Emma þyrfti að gera það reglulega...
Annars er Emma hætt að vera með bleyju heima og i dag varð ekkert slys. Vonandi þýðir það bara að nú er hún að hætta að vera með bleyju. Hún er eiginlega full áhugasöm um koppinn og vill fara á hann í tíma og ótíma. Hleypur líka um allt og endurtekur þessi fáu orð sem kann, kúka, pissa, pabbi. Oft hljómar því söngurinn Pabbi kúka, pabbi kúka um allt....
Knús til ykkar allra..
kv.
Svana
10janúar
Thad hefur eitthvad legid illa i bolid mitt med blogg undanfarid. Reyndi tho einu sinni ad koma thvi af stad en tha fraus taekni dotid og eg hef ekki byrjad sidan. Thad held 'eg hafi gerst 29 des....
En alla vega tha hofdum vid thad svaka gott 'a 'adfangadag, vorum bara vid thrju sem var alveg yndislegt! Emma hafdi mjog gaman af ad opna pakkana og opnadi tha alla hvort sem their voru til hennar eda ekki. Innihaldid for svo fyrir ofan gard og nedan hja henni thangad til daginn eftir.
Emma og Biggi logdust svo baedi i flensu og voru alveg hundveik. Emma var med 40 stiga hita i nokkra daga, utsteypt i exemi og bara aldrei ordid svona veik. Biggi gat varla lyft hofdi fra kodda thannig ad eg var ad sinna thessum lasarusum.
Thau voru tho baedi ordin naer frisk um aramotin en tha komu Disa og Elli til okkar eins og undanfarin 'ar. Thad er eiginlega bara komin hefd a thetta hja okkur... Vid Biggi tokum loford af theim um ad koma til okkar alveg sama hvar vid yrdum a naesta ari!! Eins gott ad thau standi vid thad!
Annars er lifid bara komid i sama gamla farid nuna, eg er byrjud ad vinna en Biggi byrjar i skolanum a thridjudaginn! Vid forum ad spila hja vinum okkar i gaer sem var alveg geggjad gaman! Vid verdum ad kaupa okkur spilid svo getum farid ad spila tvo heima....
Annars er allt i ovissu hja okkur eins og er, vitum ekkert hvar vid endum naesta haust. Eg vildi helst af ollu bara vera her, en thad er frekar oliklegt ad vid getum thad! Thad er kreppa a fleiri stodum en Islandi nefnilega! Eg fyllist hrolli vid tilhugsunina um ad fara ad flytja annad, thetta er bara ordid okkar heimili her, Emma er faedd herna, vid eigum vini og kunningja, eg er anaegd i vinnunni... ARGH EG VIL EKKI FLYTJA
En thad er nu best ad byrja ekki ad noldra fyrr en thetta skellur a....
kv.
Svana vaelukjoi..